Laugardagurinn 6. október

Enn er kominn laugardagur. Vikurnar æða áfram.  Þessi vika var afar stutt. Við vinnufélagarnir fórum í verslunar- og fræðsluferð til Reykjavíkur. Við fórum eftir vinnu á þriðjudag og komum heim á fimmtudagskvöld. Þræddum alla þær heildsælur og búðir sem eru með eitthvað til handmenntar. Einnig fórum við í heimsókn í Þorrasel sem er dagvist fyrir aldraða. Þar var vel tekið ámóti okkur og við fræddar um starfsemina þar, afara notarleg stund. Það er alltaf gaman að fara í þessar haustferðir okkar þó þær séu mjög lýjandi maður verður alveg andlaus (það er nú ekki nóg og gott þegar á að finna einhver spennandi handavinnuverkefni til að vinna með). 

Í morgun þegar ég vaknaði var allt hvítt úti og hálfgerður garri. Bessi(heimiliskötturinn) honum leist ekki á en herti sig þó upp og fór út. Eftir hádegið fórum við hjónin fram í fjörð til að selja K-lykilinn gekk það bara vel þó snjór væri á vegi og eðalvagninn á sumardekkjum, ja við lentum utan vegar einu sinni það kom til vegna þess að við vikum fyrir bíl og runnum þá hægt og hljótt út af. Við fengum bónda á næsta bæ til að kippa í bílinn og draga okkur upp.

Nú er ég búin með sálfræðivekefnið  og búin að senda það frá mér.

Kveð í bili

Beta   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Auður Óskarsdóttir

Sæl og blessuð Elísabet! Gaman að heyra frá þér, flott síðan þín ég var sko í Skagafirði um helgina á Löngumýri að sauma bútasaum, hrikalega gaman sá hvergi þig................. gangi þér vel að lesa kveðja Auður

Margrét Auður Óskarsdóttir, 8.10.2007 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband