Á morgun Hveragerði hér kém ég ;);)

Jæja þá er nú alveg að koma að veknámstímanum. Ég ek á mínum eðalvagni suður á bógin á morgun, til Hveragerðis. Búin að pakka, það er alveg ótrúlegt hvað maður tekur alltaf mikið með sér, eins og maður sé að fara í burtu í langan tíma og komi ekkert heima í frí, svona er þetta alltaf hjá manni. En já ég er bara nokkuð góð með þetta, þó sé smá hnútur í maganum, svona smá stress en þetta verður bara gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég er búin að fá vaktarplan fyrstu þrjár vikurnar, bara morgun- og kvöldvaktir, afar gott að þurfa ekki að taka kvöldvaktir Smile bara sæla með það.


Ég læt heyra í mér þegar fyrsta vaktin verður búin ef ég hef tíma við að gera ekki neitt við að hugsa bara um sjálfan sig. Wink 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: .

Gangi þér vel sunnan heiðar...og velkomin norður aftur

., 17.5.2008 kl. 23:16

2 Smámynd: Móðir, kona, sporðdreki:)

Já mér þykir þú mögnuð að drífa þig í Hveragerði, gaman að fara eitthvað og upplifa eitthvað alveg nýtt. Ég byrja á Hlíð á morgun og ég er nú með hnút í maganum þrátt fyrir að hafa unnið áður á Hlíð, bara ekki þessari deild:) Gangi þér rosalega vel og það verður gaman að fylgjast með verknáminu hjá okkur öllum....Kv Ernan

Móðir, kona, sporðdreki:), 18.5.2008 kl. 09:22

3 Smámynd: Kristjana  Jónsdóttir

Gaman hjá þér að breyta svona mikið til, óskaðiru eftir að fara í Hveragerði? frábært hjá ykkur sem eruð byrjaðar í verknáminu ég segi bara gangi þér sem best, kveðja Sjana

Kristjana Jónsdóttir, 18.5.2008 kl. 23:39

4 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Þetta hljómar spennandi... það er ekki smá vegalengd sem þú ferð til að fara í verknám...þetta með hnútinn í maganum það losnar engin við hann svona þegar maður er að byrja á nýjum stað.... ég er búin að vera viku og er enn hálf utangátta.. en það lagast bráðum, gangi þér glimrandi vel í verknáminu Elísabet og  verum duglegar að blogga ( segir þessi blogg -lata) það er svo gaman að fylgjast með... kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 21.5.2008 kl. 23:07

5 Smámynd: Margrét Auður Óskarsdóttir

Aldeilis gaman hjá þér að koma austur fyrir fjall og alla leið í Hveragerði, allir mjög ánægðir sem þar eru, þetta verður bara gaman hjá þér! Gangi þér allt í haginn. kveðja Auður

Margrét Auður Óskarsdóttir, 22.5.2008 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband