Á morgun Hveragerði hér kém ég ;);)

Jæja þá er nú alveg að koma að veknámstímanum. Ég ek á mínum eðalvagni suður á bógin á morgun, til Hveragerðis. Búin að pakka, það er alveg ótrúlegt hvað maður tekur alltaf mikið með sér, eins og maður sé að fara í burtu í langan tíma og komi ekkert heima í frí, svona er þetta alltaf hjá manni. En já ég er bara nokkuð góð með þetta, þó sé smá hnútur í maganum, svona smá stress en þetta verður bara gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég er búin að fá vaktarplan fyrstu þrjár vikurnar, bara morgun- og kvöldvaktir, afar gott að þurfa ekki að taka kvöldvaktir Smile bara sæla með það.


Ég læt heyra í mér þegar fyrsta vaktin verður búin ef ég hef tíma við að gera ekki neitt við að hugsa bara um sjálfan sig. Wink 


Gleðilegt nýtt ár

Það er kominn 12. jan. 2008 Pouty tíminn líður hratt á gerfihnattaöld Whistling  Hvernig er þetta fer ekki önnin að byrja? Ef hún fer ekki að byrja fer ég að verða háð því að gera ekki neitt á kvöldinSleeping!!

Jæja jólin og áramótin liðu hjá án nokkura vandkvæði hér á þessu heimili. Þó sumum af yngri kynslóðinni þætti seint byrjað að undirbúa hátíðirnar. Meir að segja var húsbóndinn að setja eldavélaháfinn upp seinnipartinn á þorláksmessu. Þegar ég var að dásama hann (sko háfinn) þá lét sonardóttirin sem er tveggja og hálfsárs ekki sitt eftir liggja að hæla afa sínum og sagði " afi, dugleg stelpa" JoyfulAfinn gat ekki fengið betra hólHappy Háfurinn (og húsbóndinn) kom að góðum notum við jólaeldamenskuna. Um áramótin var farið til Vestmannaeyja og dvalið hjá tengdaforeldrunum fram á þrettándann. Það var algjört letilíf  etið og sofið út í eitt.   

Nú er maður búin að vinna í eina viku og alveg uppgefin næsta verður auðveldari.

Jæja læt þetta vera gott í bili er að hugsa um að kíkja aðeins á sjónvarpið.

Beta


Finmmtudagur vikan búin

Ég er nú ekki mikið fyrir að blogga Blush Þegar ég sest við tölvuna finnst mér ég hafa margt annað að gera en að blogga, en þetta er eitt af verkefnunum á námsskránni, svo ég verð Shocking

Nú er ég búin að skila inn sálfræðiverkefninu úr 4.kafla, mér fannst það snúið kannske var þetta orð "skylirðing" að þvælast fyrir mér, mér fannst það tros, betra að nota nám í staðin. Ég ætla að nota helgin í sálfræðiprófið, þarf vonandi ekki að fara eða gera neitt sem truflar mig frá lestri. Síðast helgi fór illa námslega, var með bæði barnabörnin alla helgina. Síðan hélt ég mikið til í íþróttahúsinu að horfa á soninn spila körfubolta. Hann spilar í 9.flokki með Tindastól. Helgin á undan átti dóttirin að vera á Stykkilshólmi á sundmóti, en hún var svo veik að hún gat ekki farið. Hér er að ganga hálsbólga og kvef í fólki. Pinch

Nú ætla ég að fara að halla mér, er uppgefin eftir körfuboltatímann með "sexhópnum"

Góða nótt

Beta


Laugardagurinn 6. október

Enn er kominn laugardagur. Vikurnar æða áfram.  Þessi vika var afar stutt. Við vinnufélagarnir fórum í verslunar- og fræðsluferð til Reykjavíkur. Við fórum eftir vinnu á þriðjudag og komum heim á fimmtudagskvöld. Þræddum alla þær heildsælur og búðir sem eru með eitthvað til handmenntar. Einnig fórum við í heimsókn í Þorrasel sem er dagvist fyrir aldraða. Þar var vel tekið ámóti okkur og við fræddar um starfsemina þar, afara notarleg stund. Það er alltaf gaman að fara í þessar haustferðir okkar þó þær séu mjög lýjandi maður verður alveg andlaus (það er nú ekki nóg og gott þegar á að finna einhver spennandi handavinnuverkefni til að vinna með). 

Í morgun þegar ég vaknaði var allt hvítt úti og hálfgerður garri. Bessi(heimiliskötturinn) honum leist ekki á en herti sig þó upp og fór út. Eftir hádegið fórum við hjónin fram í fjörð til að selja K-lykilinn gekk það bara vel þó snjór væri á vegi og eðalvagninn á sumardekkjum, ja við lentum utan vegar einu sinni það kom til vegna þess að við vikum fyrir bíl og runnum þá hægt og hljótt út af. Við fengum bónda á næsta bæ til að kippa í bílinn og draga okkur upp.

Nú er ég búin með sálfræðivekefnið  og búin að senda það frá mér.

Kveð í bili

Beta   


Þá er það verkefnið

Það sem pirrar mig mest er ........................... draslið sem er á skrifborðinu mínu núna

Það væri sniðugt ef til væri ......................... sjálvirkur draslatiltakari af skrifborðinu

Af hverju er ekki boðið upp á ........................heila sem er ekki eins andlaus og ég er


Fyrsta blogg

Það er hægt að hafa mann út í allt, bloggGetLost  Þetta er byrjunin

Kveðja Beta


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband